Google Drive
Google Drive er frábær skýjalausn sem gerir þér kleift að geyma öll gögnin þín á netinu og þar með haft aðgang að þeim úr öllum tækjum. Þú getur líka búið til skjöl og deilt þeim með öðrum á einfaldan hátt,

Kennslumyndband um Google Drive.
Kennslumyndband um Google forms.
Nearpod
Verkefni
1.
2.
Ef þú átt ekki Google aðgang þá skaltu byrja á því að útbúa þér aðgang.
Ef þú átt Google aðgang prófaðu þá að búa til nýtt skjal eða skjöl, settu það/þau í möppu(r).
Deildu skjalinu með einhverjum öðrum sem er á námskeiðinu og prófið að vinna saman í skjalinu.
Prófaðu endilega að gera bæði Docs skjal (Word), Sheets skjal (Excel) og Presentation skjal (Powerpoint).
Horfðu síðan á seinna myndbandið og útbúðu Google Form. Gerðu stutta könnun og fáðu einhvern/einhverja til að svara henni. Skoðaðu svörin sem þú færð send.
Nearpod er bráðsniðugt forrit þar sem hægt er að búa til gagnvirkar glærur. Leyfðu nemendum að taka þátt í Powerpoint kyninngunni þinni með því að spyrja spurninga. Þú stjórnar ferðinni.

Kennslumyndband um Nearpod.
Verkefni
Útbúðu glærukynningu og hafðu með gagnvirkar spurningar. Þú getur útbúið glærukynninguna sjálfa í Powerpoint, Keynote eða á Google Drive síðan bætirðu inn í gagnvirkum glærum.
Hafðu krossaspurningu.
Hafðu teiknispurningu.
Hafðu athyglisspurningu.
Wix.com
Wix.com er html5 vefsíðugerðarsíða. Það er í raun lítið mál að útbúa vefsíður í dag en hér er hægt að taka fyrstu skrefin. Wix.com er drag&drop síða sem flestir ná góðum tökum á mjög flótt.

Kennslumyndband um Wix.com.
Þetta myndband fer með þig inn á rásina hjá Wix.com. Þar er að finna 37 kennslumyndbönd þannig að þú getur flakkað á milli.
Það verður að notast við tölvu.
Útbúðu heimasíðu með námsefni fyrir nemendur þína. Settu inn nokkur verkefni og útbúðu undirsíður o.fl. Settu inn myndir, myndbönd og tengla. Hér er alltaf hægt að laga og breyta, endilega vertu óhrædd(ur) við að fikta þig áfram og/eða spyrja.
Verkefni
Tackk
Tackk.com er einföld vefsíðugerðarsíða sem býr til einnarsíðu síður (one-pagers). Það er mjög einfalt í notkun og gott fyrir unga nemendur að ná tökum á. Auðvelt að deila og hægt að skrá sig inn með Google.

Kennslumyndband um Tackk.com
Verkefni
Útbúðu litla heimasíðu. Hér er algjörlega frjálst hvort síðan sé um þig, faggreinina þína, verkefni, áhugamál o.s.frv. Má vera hvað sem er. Reyndu að nota flest tólin sem sýnd eru í myndbandinu.
Kahoot
Kahoot er mjög skemmtileg síða þar sem hægt er að búa til fljótlega og skemmtilega spurningaleiki. Hér erum við að tala um lifandi spurningaleiki sem hægt er að gera uppi á töflu með öllum bekknum.

Kennslumyndband um Kahoot.
Verkefni
Útbúðu lítinn spurningaleik og f áðu einhverja með þér til að taka þátt.
Í stofu 30 er tölva og Snjalltafla.
Smáforrit - Öpp
Hér er smá listi yfir sniðug smáforrit til þess að nota fyrir yngri barna kennslu. Þessi listi er langt frá því að vera tæmandi, aðeins nokkrar hugmyndir. Endilega kíkið á þau á Youtube.
Sum eru ókeypis en önnur kosta nokkrar krónur.
Little Writer

Little Writer er bráðsniðugt app fyrir börn sem eru að læra stafina. Kennt er hvernig á að skrifa stafina rétt, bæði hástafi og lágstafi auk stuttra orða og forma.
Hægt er að bæta við íslenskum stöfum og lesa inn á.
Stop Motion Pro

Stop Motion er mjög skemmtileg leið í kvikmyndagerð. Í grunninn gengur SM út á að taka upp ljósmyndir og raða þeim saman í myndband. Stop Motion Pro er mjög gott forrit fyrir unga sem aldna til þess að ná tökum á þessari skemmtilegu grein.
Bitsboard

Bitsboard er safn af mismunandi leikjum til að efla og styrkja orðaforða og auka minni. Hentar öllum aldurshópum frá leikskóla og upp úr.
Book Creator

Hérna fær sköpunargleðin að njóta sín. Í Book Creator er hægt að búa til bækur. Skrifa texta, setja inn myndir og taka upp hljóð. Svo er auðvelt að deila bókinni með hverjum sem er.
Lærum og leikum með hljóðin
Little Reader

Frá sömu framleiðendum og Little Writer (Grashopper Apps) heitir framleiðandinn. Hér á að læra að lesa og hægt er að taka upp á íslensku inn í leikinn.
Orðaleikurinn

Einfaldur orðaleikur. Upp kemur mynd og reitir sem sýnir hversu margir stafir orðið er. Stöfunum er síðan ruglað fyrir neðan og draga þarf réttan staf á réttan stað.
Puppet Pals

Hér er hægt að útbúa brúðuleikhús og skemmtilegan hátt. Hægt er að notast við eigin myndir og vinna svo áfram með hljóð og tónlist. TIlvalið til að segja sögur á skemmtilegan hátt.
Green Screen by do ink

Green Screen hentar mjög vel fyrir börn á öllum aldri. Þau eldri geta útbúið flókin myndbönd á meðan þeim yngri finnst ekkert skemmtilegra en að hitta Elsu og Önnu eða Svamp Sveinsson.

Frábært kennsluforrit þegar kemur að því að byrja blanda stöfunum saman í lestri. Rödd í leiknum segir hvernig bera á fra t.d. 'le', 'lo' og 'lí', svo eitthvað sé nefnt. Krakkar verða fljótir að ná tökum á lestri.
Stærðfræðileikurinn

Einfaldur stærðfræðilekur. Samlanging, frádráttur, margföldun og deiling. Draga þarf réttar flísar með réttum tölustöfum á rétta staði.
Charades

Charades er þekktur leikur víðs vegar um heim sem við Íslendingar þekkjum kannski helst sem Actionary. Hér er safn af orðum og orðaflokkum og mjög skemmilegt til þess að brjóta upp.
Aurasma

Aurasma er æðislegt app þar sem hægt er að tengja myndbönd við myndir. Þegar ungt barn sér stærðfræðidæmi sem það getur ekki leyst er nóg að færa snjalltælið yfir myndina við hlðina á dæminu og myndin lifnar við og útskýrir.