top of page

Thatquiz

Thatquiz er heimasíða þar sem hægt er að gera fjölbreyttar kannanir og próf. Það er mjög auðvelt að deila með öðrum kennurum, leggja fyrir nemendur á öllum tegundum tækja og fylgjast með árangri.

Fyrstu skrefin í Thatquiz.

Hvernig á að búa til próf.

Verkefni

Búðu þér til aðgan á Thatquiz. PASSAÐU AÐ SKRIFA NIÐUR NOTENDANAFN OG LYKILORÐ.

Búðu til einn prufubekk með tilbúnum nöfnum.

 

Búðu svo til þrenns konar próf.

Para saman

Spurningar (krossa og texta)

Glærur (prófað að notast við mynd(ir).

 

Hafðu á bilinu 5-10 spurningar í hverju prófi og leggðu það svo fyrir aðra gesti námskeiðisins. Kíktu á einkunnir og prófaðu þig áfram.

Brekkupróf

Mjög sniðugt til þess að nota í símati. Mælir ekki bara eina heildareinkunn heldur skiptir henni niður í hluta. Hvar getur nemendur bætt sig? Hvar stendur nemandi bara nokkuð vel?

Sýnishorn af brekkuprófi.

Verkefni

Prófaðu að útbúa lítið brekkupróf og fáðu svo leiðsögn um hvernig þú getur búið til formúlur til að reikna prófið eins og þú vilt láta reikna það.

Áformsskjölin

Við í Vallaskóla notumst við svokölluð áformsskjöl. Hver og einn nemand á unglingastigi er með sitt áformsskjal þar sem fram kemur hvaða verkefni hann eða hún eiga að leysa og á hvaða tíma.

Áformsskjölin í Vallaskola.

Verkefni

Hvernig telur þú að sé best að fá nemendur til að bera ábyrgð á sínu námi? Er nóg að vera með áformsskjal eins og við í Vallaskóla? Eru til einhverjar betri leiðir?

Fjölbreytileiki í námsmati

Rafrænt nám býður upp á fjölbreyttar leiðir til að símeta nám nemenda. Einnig er hægt að veita endurgjöf á fjölbreyttan hátt eins og með hljóðupptökum, myndböndum o.f.

Már talar um fjölbreytt námsmat.

Einstaklingsmiðun

Mikið hefur verið rætt um einstaklingsmiað nám á þessari öld. Í rafrænu námi er mun auðveldara að bæði leggja fyrir ólíkt nám fyrir nemendur með ólíkar þarfir sem og halda utan um það.

Már talar um einstaklingsmiðaða kennslu.

Munurinn á flippaðri og hefðbundinni kennslu.

Glærukynning um einstaklingsmiðun. Höfundur: Hróbjartur Árnason.

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page
bottom of page