Youtube
Youtube er án efa ein vinsælasta síða á netinu í dag. Það er auðvelt að hlaða inn myndböndum, það er líka hægt að klippa þau til, bæta inn texta og tónlist o.fl. Hér er stutt myndband sem fer í gegnum helstu atriði.

Helstu atriðin í Youtube fræðum.
Textaskilti, tenglar, atriðalistar o.fl.
Textaskilti, tenglar, atriðalistar o.fl.
Verkefni
Prófaðu að hlaða inn stuttu myndbandi. Það má í raun vera hvað sem er. Prófaðu að klippa það aðeins til og bæta inn tónlist og texta í Youtube Editor.
Hérna kemstu inn á Youtube Editor.
Æfðu þig svo að setja inn textaskilti, tengla og/eða kafla.
Vendikennsla
Eitt besta tækið sem kennarar hafa í dag til þess að ná til nemenda er myndbandagerð. Hér er stiklað á því helsta varðandi kost og galla og hvað bera að varast.

Már fer yfir vendikennslufræði.
Verkefni
Prófaðu að taka upp stutt myndband yfir eitthvað námsefni sem gott væri að venda. Myndbandið þarf ekki að vera langt, sum myndbönd eru bara 10 sekúndur. Við vitum aldrei hvernig þetta kemur út hjá okkur nema við prófum.
IMovie
IMovie er forrit til að klippa mynbönd. Einn stærsti kosturinn við IMovie er að allir geta notað það, það er svo einfalt í notkun. Alls staðar er hægt að ýta á lítið spurningarmerki sem útskýrir allar aðgerðir.

Kennslumyndband um Google Drive í Windows.
Verkefni
Útbúðu stutt myndband með að minnsta kosti 5 samsettum klippum. Það getur verið verkefni, fyrirlestur, o.fl. Þar sem þetta er æfing skaltu hafa það stutt og hnitmiðað.
Notaðu texta, settu inn tónlist, breytti....
Glærukynningar / myndbönd
Ein algengasta leiðin þegar kennarar byrja á að útbúa vendikennslumyndbönd er að tala einfaldlega yfir glærur sem þeir eiga til. Það er mjög einfalt og fínt til að byrja einhversstaðar.


Hvernig á að taka upp KEYNOTE glærur.
Hvernig á að taka upp POWERPOINT glærur.
Verkefni
Gerðu nú eitt vendimyndband annað hvort með glærukynningu sem þú átt eða útbúðu nýja.
Green Screen
Green Screen tæknin er bráðsniðug og notuð í nánast allri kvikmyndagerð að einhverju leyti. Nú er mjög einfalt að taka upp fyrir framan grænskjá og mörg sniðug smáforrit sem kosta lítið eða ekkert.

Kennslumyndband um Green Screen. Myndbandið er að finna á
Kennslumyndband um Green Screen by Do Ink
Verkefni
Útbúðu myndband og notastu við grænskjá. Hafðu bæði hreyfimyndir og ljósmyndir. Reyndu að nota eins mikið af mismunandi bakgrunnum og þú getur.
Það eru 2 grænir veggir í Vallaskóla, í stofu 26 og 29.
Á Ipad er gott að nota app sem heitir Green Screen by Do Ink. Það kostar $2,99 en er á öllum spjaldtölvum Vallaskóla og ykkur er frjálst að prófa.
Videoscribe
Videoscribe er mjög sniðug síða þar sem þú getur búið til teiknaðar kynningar. Öll höfum við séð flott útskýringamyndbönd þar sem hönd kemur inn í mynd og teiknar fyrir okkur á meðan talað er yfir.

Kennslumyndband um Green Screen. Myndbandið er að finna á
Þetta myndband fer með þig inn á rásina hjá Videoscribe. Þar er að finna 11 kennslumyndbönd þannig að þú getur flakkað á milli.
Þetta forrit kostar svolítinn pening en það er hægt að skrá sig á 7 daga fría reynslu.
Verkefni
Útbúðu stutta kynningu þar sem þú útskýrir eitthvað tengt þinni kennslugrein. Hafðu þetta bara stutt og reyndu að skreyta eins og hægt er með teiknuðum myndum.