top of page

Glæpasaga

Skylduverkefni:

Kafli 1: 

Lögð er mikil áhersla á að verkefnin séu vel unnin, frágangur góður og uppsetning verkefna skýr.


Rökstuðningur er nauðsynlegur og þá vísað  í söguna.

  1. Sagan - Heiti sögu sem var lesin, útgefandi og útgáfuár.
     

  2. Höfundur – Segðu frá höfundi sögunnar og helstu verkum hans. (50 orð)
     

  3. Söguþráður - Rektu söguþráð í stuttu máli(150-200 orð).
     

  4. Glæpurinn – Segðu frá glæpnum, hver er fléttan, hver er ástæða þess að glæpurinn var framinn, ást, hatur, öfund.....
     

  5. Persónur – Segðu frá þremur persónum sögunnar, útliti, einkennum þeirra, hlutverk þeirra í sögunni, tengsl við aðrar persónur svo eitthvað sé nefnt.
     

  6. Tími og umhverfi – hve langur tími líður innan sögunnar, hvenær gerist sagan og hvar. Vísaðu í söguna þér til stuðnings.
     

  7. Ritdómar - Finndu ritdóma sem sagan hefur fengið, hvort heldur erlenda eða innlenda. Tilgreindu hvar þeir voru birtir og hver skrifaði þá. Hvernig dóm fékk sagan?
     

  8. Finndu 10 orð eða orðasambönd sem þér finnast torskilin. Útskýrðu þau og segðu á hvað bls. þau eru og við hvað aðstæður í sögunni þau eru notuð.

BÚIÐ TIL EITT SKJAL FYRIR ÖLL VERKEFNIN INNI Á DRIVE OG SETJIÐ ÞAÐ UPP SKILMERKILEGA.

  1. Skrifaðu bréf frá glæpamanninum þar sem hann biður um fyrirgefningu á glæpi sínum.
     

  2. Hvaða atburður sögunnar fannst þér skemmtilegastur? Rökstyddu.
     

  3. Hvaða atburður sögunnar fannst þér áhrifamestur? Rökstyddu.
     

  4. Hvaða persónu sögunnar hafðir þú mesta samúð með? Rökstyddu.
     

  5. Hvaða persónu sögunnar hafðir þú mesta andúð  á? Rökstyddu.
     

  6. Hverju myndir þú breyta í sögunni ef þú mættir það?
     

  7. Hvers vegna? Rökstyddu.

Valverkefni:

  1. Búðu til sjónvarpsauglýsingu fyrir bókina og taktu upp.
     

  2. Hannaðu bíómyndaauglýsingu/plakat ef sagan yrði kvikmynduð.
     

  3. Semdu ljóð/lag/texta sem hæfir sögunni, taktu upp flutning.
     

  4. Teiknaðu persónu úr bókinni.
     

  5. Semdu leikþátt um einhvern af atburðum sögunnar og taktu upp.
     

  6. Hvaða lag myndir þú nota sem titillag/þemalag ef mynd yrði gerð eftir sögunni. Rökstyddu.
     

  7. Búðu til stiklu (trailer) eins og um kvikmynd væri að ræða. 
     

Valverkefni - Tjáning:

Veldu 4 verkefni af þessu lista.

Veljið 4 verkefni af þessu lista.

bottom of page