top of page

Höfn

Skoðaðu myndina [HÖFN] eftir Baldur McQueen.

Gerðu tvö af eftirfarandi verkefnum.

 

a) Teiknaðu eða taktu þína eigin mynd og byggðu hana á einhverju stefi eða innblæstri sem þú færð úr ljósmyndinni hér að ofan.

b) Semdu ljóð um myndina. Eða stutta sögu. Reyndu að hafa „stílinn“ á textanum þann sama og er á ljósmynd Baldurs.

c) Rökfærsla: „Fólk byggir upp varnir sem verða á endanum fangelsi sem gera manni lífið erfiðara.“ Rökræddu þessa fullyrðingu með dæmum og taktu afstöðu.

d) Smíði: Byggðu vita (sem virkar) úr afgangsdóti (jógúrt- eða skyrdósum, mjólkurfernum eða einhverju öðru). Hann þarf að geta lýst. Taktu myndir eða myndband og settu á netið.

e) Fróðleikur: Ljósmyndarar eiga myndirnar sínar og aðrir mega ekki nota þær án leyfis. Baldur leyfði okkur að nota þessa. Síðustu ár hafa ljósmyndarar reynt að gera reglur um myndanotkun skýrar, m.a. með því að nota s.k. Creative Commons leyfi. Finndu upplýsingar um CC á íslensku og segðu frá.

 

f) 6. Annað. Hvað viltu gera?

 

 

Skylduverkefni:

Kafli 3: 

bottom of page