top of page

Entourage

Öll verkefni á að vinna á ensku.

Skylduverkefni:

Stjörnurnar í Hollywood eiga sér venjulega fylgdarlið (entourage). Það eru oft vinir og vandamenn of jafnvel fjölskyldumeðlimir.

 

Gerðu stuttan leikþátt um þig og þitt fylgdarlið. Þú ræður hvort þú segir satt frá hvað þú og þínir vinir gera í alvörunni eða hvort þú semur leikþátt þar sem þið farið í fallhlífarstökk og paintball á hverjum degi eða eitthvað álíka ævintýralegt. 

 

Hér er um stuttmynd að ræða. 2-3 mínútur.

Valverkefni:

Veldu annað hvort A eða B

A) Veldu þér leikara eða leikkonu og skrifaðu stuttlega um hvernig hann/hún varð fræg í Hollywood. Þú mátt líka taka upp myndband af þér segja frá því eða taka upp hljóðskrá.

 

 

 

B) Finndu upplýsingar um muninn á "agent" og "manager" sem á íslensku myndi bæði þýðast sem umboðsmaður. Hvert er starf "agent" og hvert er starf "manager", þurfa stjörnur á báðum að halda? (100-200 orð).

 

Kafli 3: 

bottom of page