
Alþingi
Skylduverkefni:
Settu upp umræðuþátt þar sem rædd eru tvö hitamál. Að minnsta kosti einn þarf að vera í hlutverki stjórnarandstöðu og annar í stjórn.
Í þessum verkefnum er mikilvægt að glósa. Það má gera bæði í tölvu eða á blað.
Vinnið og skilið í Drive eða á Showbie.
Hér þarf að notast við vefinn ungmennavefur.is
Veljið annað hvort A eða B og svarið vel. vísið í heimildir þar sem við á.
A) Starfshættir þingsins
Hlutverk Alþingis er að setja lög, ræða um pólitísk mál og veita framkvæmdar- og dómsvaldi aðhald. Kynnið ykkur hvernig þingið starfar og skoðið sérstaklega eftirfarandi atriði:
a) Þingsköp.
b) Þingfundi – umræður.
c) Þingsályktunartillögur.
B) Fastanefndir þingsins
Á Alþingi starfa fastanefndir um ákveðin málefni. Kynnið ykkur þessar nefndir og skoðið sérstaklega eftirfarandi atriði:
a) Fjölda og heiti nefndanna.
b) Verksvið hverrar nefndar.
c) Hvernig þær starfa.
Valverkefni:

Kafli 3:
Hér þarf að styðjast við bókina (smellið á myndina hérna fyrir neðan), heimasíðuna ungmennavefur.is og netið almennt.





