top of page

Hugtaka og lesskilningur

Fann fjársjóð á Mont Blanc

Skylduverkefni:

Svaraðu þessum spurningum

skriflega eða munnlega.

  1. Hvað merkir að vera talsmaður? Geturðu fundið annað orð sem hefur sömu eða svipaða merkingu?
     

  2. Hvað merkir að grafast fyrir um eitthvað?
     

  3. Hvað er átt við þegar sagt er að flugvélin hafi farist?
     

  4. Hvers lenskur var fjallgöngumaðurinn sem fann fjársjóðinn?
     

  5. Hvaða hugtak eða orð myndir þú nota yfir persónuleika fjallgöngumannsins sem fann fjársjóðinn?
     

  6. Hvað merkir orðið brak?
     

  7. Hvað merkir orðið líkamsleifar?

 

Franskur fjallgöngumaður sem gekk á Mont Blanc fann nýverið fjársjóð í hlíðum fjallsins. Fjársjóðurinn er metinn á rúmlega 40 milljónir króna. Fjársjóðurinn var í stálboxi, en í því voru smaragðar, roðasteinar og safírar. Boxið er talið vera úr flugvél sem fórst í fjallinu fyrir um 50 árum síðan. Fjallgöngumaðurinn skilaði fjársjóðnum til lögreglunnar.

 

Sylvain Merly, talsmaður frönsku lögreglunnar, segir að fjallgöngumaðurinn hafi áttað sig á að fjársjóðurinn tilheyrði einhverjum sem fórst á fjallinu. Hún segir að poki í boxinu hefði verið með áletrunina „Made in India“. Franska lögreglan er að reyna að grafast fyrir um hver gæti hafa átt fjársjóðinn. Hún hefur haft samband við yfirvöld á Indlandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er finnandi fjársjóðs lögmætur eigandi hans ef ekki tekst að hafa upp á eigandanum.

 

Tvær indverskar flugvélar fórust við Mont Blanc 1950 og 1966. Fjallgöngumenn sem ganga á fjallið finna öðru hverju brak og líkamsleifar úr flugvélunum.

Kafli 2: 

bottom of page