top of page

Málfræði

Fann fjársjóð á Mont Blanc

Skylduverkefni:

Leystu fimm verkefni af þessum lista.

  1. Finndu 5 nafnorð í textanum.
     

  2. Finndu 3 nafnorð í fleirtölu.
     

  3. Finndu 3 nafnorð í eintölu.
     

  4. Finndu 3 nafnorð með greini.
     

  5. Finndu 3 nafnorð án greinis.
     

  6. Finndu 2 töluorð.
     

  7. Finndu 5 sagnorð.
     

  8. Finndu 3 sagnorð í þátíð.
     

  9. Fallbeygðu orðin franskur fjallgöngumaður.
     

  10. Segðu í hvaða kyni orðin eru: fjallgöngumaður, fjársjóður, fjallsins, milljónir, króna, smaragðar, roðasteinar, flugvél, árum.

 

Franskur fjallgöngumaður sem gekk á Mont Blanc fann nýverið fjársjóð í hlíðum fjallsins. Fjársjóðurinn er metinn á rúmlega 40 milljónir króna. Fjársjóðurinn var í stálboxi, en í því voru smaragðar, roðasteinar og safírar. Boxið er talið vera úr flugvél sem fórst í fjallinu fyrir um 50 árum síðan. Fjallgöngumaðurinn skilaði fjársjóðnum til lögreglunnar.

 

Sylvain Merly, talsmaður frönsku lögreglunnar, segir að fjallgöngumaðurinn hafi áttað sig á að fjársjóðurinn tilheyrði einhverjum sem fórst á fjallinu. Hún segir að poki í boxinu hefði verið með áletrunina „Made in India“. Franska lögreglan er að reyna að grafast fyrir um hver gæti hafa átt fjársjóðinn. Hún hefur haft samband við yfirvöld á Indlandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er finnandi fjársjóðs lögmætur eigandi hans ef ekki tekst að hafa upp á eigandanum.

 

Tvær indverskar flugvélar fórust við Mont Blanc 1950 og 1966. Fjallgöngumenn sem ganga á fjallið finna öðru hverju brak og líkamsleifar úr flugvélunum.

Kafli 3: 

bottom of page