top of page

Stafsetning

Fann fjársjóð á Mont Blanc

Skylduverkefni:

Leystu tvö verkefni af þessum lista.

  1. Veldu eina af fyrstu tveimur efnisgreinunum í fréttinni og skrifaðu hana upp. Reyndu að hafa hana villulausa. Taktu mynd af því sem þú skrifar og sendu á kennara.
     

  2. Búðu til eins mörg ný orð úr orðinu fjallgöngumaðurinn.
     

  3. Flettu upp í orðabók að merkingu orðanna: smaragðar, roðasteina og safírar. Finndu mynd af þessum gimsteinum og skrifaðu skýringuna sem þú finnur við myndirnar.

 

Franskur fjallgöngumaður sem gekk á Mont Blanc fann nýverið fjársjóð í hlíðum fjallsins. Fjársjóðurinn er metinn á rúmlega 40 milljónir króna. Fjársjóðurinn var í stálboxi, en í því voru smaragðar, roðasteinar og safírar. Boxið er talið vera úr flugvél sem fórst í fjallinu fyrir um 50 árum síðan. Fjallgöngumaðurinn skilaði fjársjóðnum til lögreglunnar.

 

Sylvain Merly, talsmaður frönsku lögreglunnar, segir að fjallgöngumaðurinn hafi áttað sig á að fjársjóðurinn tilheyrði einhverjum sem fórst á fjallinu. Hún segir að poki í boxinu hefði verið með áletrunina „Made in India“. Franska lögreglan er að reyna að grafast fyrir um hver gæti hafa átt fjársjóðinn. Hún hefur haft samband við yfirvöld á Indlandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er finnandi fjársjóðs lögmætur eigandi hans ef ekki tekst að hafa upp á eigandanum.

 

Tvær indverskar flugvélar fórust við Mont Blanc 1950 og 1966. Fjallgöngumenn sem ganga á fjallið finna öðru hverju brak og líkamsleifar úr flugvélunum.

Kafli 4: 

bottom of page