top of page

Olnbogarými

(Lebensraum)

Skylduverkefni:

Horfðu á myndbanið eða/og lestu textann fyrir neðan.

 

Taktu svo könnunina neðst á síðunni.

Þrátt fyrir að kommúnistum mistækist að ná því markmiði sínu að koma í veg fyrir stríð með því að þjappa verkafólki í Evrópu saman gegn hinum sameiginlega óvini, arðræningjanum – varð alveg ljóst að undir lok fyrri heimsstyrjaldar var nýtt tækifæri til að innleiða nýja, spennandi stjórnmálastefnu í álfunni. Sjálft stórveldið Rússland hafði verið lagt undir kommúnisma svo úr varð nýtt heimsveldi, Sovétríkin, sem stjórnuðu atburðarás 20. aldar ásamt nokkrum öðrum voldugum ríkjum upp frá því.

Suður á Ítalíu var hinsvegar stjórnmálamaður sem taldi að þótt lýðræðið væri vissulega handótnýtt stjórnarfar þá væri kommúnisminn eiginlega verri. Þessi stjórnmálamaður sá hina blóðugu heimsstyrjöld sem einhverskonar hreinsunareld þar sem ríki Evrópu bræddu utan af sér veikleikana og út úr eldinum myndi síðan sterkasta aflið stíga. Stjórnmálamaðurinn hét Benító Mússólini. Sú stjórnmálastefna sem hann aðhylltist varfasismi.

Það er í sjálfu sér ekki of auðvelt að skilgreina fasisma. Stjórnmálum er oft skipt í hægri stefnu og vinstri stefnu og þá gjarnan með kommúnista lengst til vinstri og fasista lengst til hægri. Það má þó draga slíka skiptingu í efa. Í grófum dráttum voru fasistarnir samt greinilega á öndverðum meiði við kommúnistanna. Fasistum fannst fáránlegt að hugsa sér að sameina verkafólk eða aðrar stéttir þvert yfir landamæri þvers og kruss. Þvert á móti ættu einstakar þjóðir einmitt að standa saman og vera stoltar af þjóðerni sínu. Fasistum fannst ekkert tiltökumál þótt ein þjóð legði undir sig aðra eða færi með ófriði gegn öðrum. Þá þótti þeim nýlenduveldi (en það er þegar þjóðir ákveða að ráða yfir öðrum þjóðum, t.d. eins og þegar Danir réðu Íslandi eða Frakkar réðu Alsír) bæði sjálfsagt og eðlilegt. Þjóðir ættu að vera stoltar og sterkar – og sá sterki á að hafa meiri rétt en aðrir. Fasistar sáu líka engan tilgang í lýðræði. Þeir töldu það veikt stjórnarfar og sáu ekki tilganginn í því að allir þyrftu að hafa áhrif. Þeir töldu miklu betra að einn leiðtogi réði og tæki ákvarðanir fyrir þjóðina alla. Nú ákvað Mussólini að verða slíkur leiðtogi. Hann kallaði sig einfaldlega Il Duce sem þýðir leiðtoginn.

Fasismi hafði í einni eða annarri mynd kraumað undir í Evrópu frá því á 19. öld. Margir aðdáendir fasisma álitu hann eðlilegt og sjálfsagt viðbragð við kommúnisma, sem auðvitað varð meira og meira í tísku eftir því sem á leið. Aðrir sáu í fasisma einhverja heimspekilega dýpt og töldu sig geta lesið úr verkum frægra heimspekinga eins og Friedrichs Nietzsche áróður um að fasismi væri málið. Sú skoðun byggði meira á óskhyggju en nokkru öðru. Fasistarnir voru að mörgu leyti dálítið rómantískir. Þeim fannst gaman að klæða sig í stællega búninga og ímynda sér að þeir væru dálítið að endurreisa forna dýrð Evrópu. Á Ítalíu sóttu fasistar mikið til Rómverja. Þeir skoðuðu fornminjar á söfnum og stældu þær. Þegar Þjóðverjar fóru á fullt í fasisma stálu þeir líka frá Rómverjum. Meðal annars frægri hermannakveðju sem var þannig að maður rétti út hægri handlegginn.

Sú hugmynd að ríki væru stolt og sterk og að lýðræðið væri veikburða og gallað féll að sjálfsögðu í frjóan jarðveg í Weimar-lýðveldinu þar sem fátækt, basl og niðurlæging var daglegt brauð. Fáir menn féllur harkalegar fyrir hugmyndinni en hinn ungi Adolf Hitler sem hafði allan tímann fundist að menn hefðu alls ekki lagt sig nóg fram í fyrri heimsstyrjöldinni. Þegar við bættist að fólk fór að hafa verulegan áhuga á djammi, djass og drykkju fannst sumum eins og nú væri allt hið besta við samfélagið að fara til fjandans. Eins og áður sagði var þetta ekki bara bundið við Þýskaland. Í Bandaríkjunum reyndu menn að banna áfengi til að vernda fólk fyrir sjálfu sér. Ku Klux Klan og önnur furðusamtök fengu í magann yfir því að skyndilega væri svart fólk farið að stíga á svið og spila tónlist. Hvað þá að fólk af ólíkum kynþáttum væri farið að djamma og skemmta sér saman. Fram að þessu höfðu t.d. hvítir menn leikið svertingja, yfirleitt með því að maka á sig skósvertu. Al Jolson var einna frægastur „svartra“ leikara. Á sama tíma og djassin dunaði safnaði Ku Klux Klan meðlimum til að reyna að sjá til þess að hlutirnir breyttust ekki of mikið. Raunar varð þeim furðu vel ágengt.

Í Þýskalandi kölluðu fasistarnir sig nasista. Það var stytting á nafni stjórnmálaflokksins sem Hitler varð innan skammst aðalnáunginn í. Flokkurinn hét Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei sem þýðir eiginlega Þýski þjóðernissósíalsíski verkamannaflokkurinn. Af orðinu „national“ kom orðið nasismi og nasisti. Nasistarnir voru eins og áður sagði ekki minna hrifnir af Rómverjum en fasitarnir á Ítalíu en ofan í kaupið bættist að þeir þýsku töldu sig eiga dálítinn rétt á því að endurvekja forn-norræna menningu í sinni ímyndarsköpun. Þeir ímynduðu sér að áður fyrr hefði búið í N-Evrópu stolt og sterk þjóð norrænna manna sem smám saman hefði orðið veikleika og úrkynjun að bráð. Nú væri tímabært að endurreisa hið stolta, norræna samfélag. Þegar nasistar höfðu náð nokkrum völdum sendu þeir meðal annars sendimenn til Íslands, sem þeir töldu að hlyti að vera eins og öryggishólf vegna þess að landið hefði verið svo einangrað frá öðrum löndum, hér hlytu því glæsimenni og menning að vera á hverju strái. Orð fá varla lýst hve sendimennirnir voru skúffaðir þegar athuganir leiddu í ljós að Íslendingar voru engin ofurmenni heldur frekar púkalegir og venjulegir menn sem höfðu ekkert hirt um það sérstaklega að viðhalda einhverri stórglæsilegri menningu. Í staðinn fyrir Gunnar á Hlíðarenda á hverju strái þá voru hér bara venjulegir menn.

Hitler reynist hinn ágætasti ræðumaður. Hann átti auðvelt með að þykjast vera ofsalega reiður og hreif fólk með sér. Hann hafði líka fengið góðan tíma til að hugsa málin. Nasistarnir höfðu nefnilega sannfært sjálfa sig um það strax árið 1923 að þeir gætu hreinlega tekið völdin. Fram að því höfðu þetta aðallega verið Hitler og félagar að halda svaka ræður í bjórkjöllurum og labba um göturnar í einkennisbúningum. Þeir gerðu uppreisn sem brotin var á bak aftur og Hitler endaði í fangelsi. Þar skrifaði hann langa bók sem var blanda af ævisögu hans, stjórnmálaskoðunum og einhverju sem hann og aðrir nasistar töldu vera djúpa og merka heimspeki. Bókin hét Barátta mín (Mein Kampf) og á mesta uppgangstíma nasismans þurftu helst allir Þjóðverjar að eiga hana og flestir þóttust hafa lesið hana líka.

Eftir hina misheppnuðu uppreisn áttuðu nasistarnir sig á því að kannski væru til auðveldari aðferðir við að komast til valda en að fremja vopnaða byltingu. Valdhafarnir höfðu her og lögreglu sér til varnar. Þeir ákváðu því að nýta sér lýðræðið (þótt þeir væru auðvitað af hugsjónaástæðum á móti því). Hitler naut þess að eiga mikinn áróðurssnilling í Jósef Göbbels. Göbbels skipulagði og stjórnaði því með hvaða hætti almenningur fékk að sjá Hitler. Hann skipulagði líka kosningabaráttu og útifundi sem að mestu leyti lögðu grunn að meira og minna öllum kosningabaráttum fram á daginn í dag. Hitler var látinn klappa hundum fyrir framan myndavélarnar og klípa í kinnarnar á smábörnum. Hann flaug á milli borga og hélt fjöldafundi. Nasistarnir pússuðu stígvélin sín og straujuðu búningana og héldu stórar skrúðgöngur og útifundi. Göbbels fékk kvikmyndagerðarkonuna Leni Riefenstahl til að gera kvikmyndir um nasistana og þess var gætt að myndir af Hitler væru teknar neðanfrá því þannig virkaði hann stærri og voldugri (en hann var pínulítill eins og Mússólíni). Þeim sögum var komið á kreik að kvenfólkið væri vitlaust í Hitler.

Um leið fóru nasistarnir að halda á lofti þeim áróðri að ógæfa Þýskalands væri öllum öðrum að kenna en Þjóðverjum sjálfum. Það var ekki alveg vandræðalaust að búa til sannfærandi útskýringu á vanda Þjóðverja. Nasisminn, eins og annar fasismi, gekk nefnilega út frá því að sá sterki ætti að ríkja. Þjóðverjar höfðu einmitt tapað í stríði og margt af ógæfu þeirra spratt af því. Ef fasistar hefðu verið alveg fyllilega samkvæmir sjálfum sér hefðu þeir einfaldlega sagt að þeir ættu þetta bara skilið. Þeir fundu þó leið. Hún var að kenna aðskotahlutum um. Bæði kommúnisma, sem þeir töldu að veikluðu andlegt þrek þjóðarinnar, og síðan fannst þeim gráupplagt að kenna Gyðingum um. Gyðingar, sem ættaðir voru frá Miðjarðarhafi, voru hin fullkomna andstæða þess norður-evrópska mikilmennis sem Þjóðverjar héldu að þeir væru í laumi. Auk þess voru Gyðingar að mörgu leyti snjallir og duglegir kaupmenn og bankamenn. Það var því ekki sérlega erfitt að sannfæra ómenntaða, fátæka þýska verkamenn um að ekki aðeins væru þeir sjálfir hálfgerðir germanskir prinsar í dulargervi, næstum ofurmenni, heldur væru þeir blankir vegna þess að aðrir hefði eiginlega stolið peningunum þeirra.

Gyðingahatur og gyðingaandúð var ekkert nýtt. Gyðingar höfðu á ýmsum tímum verið ofsóttir í flestum löndum Evrópu. Stundum var þeim ekki leyft að reka viðskipti nema á allra verstu svæðunum. Þannig máttu þeir t.d. stunda verslun á Íslandi en ekki í Danmörku. Sem er skýringin á því að til eru verslunarhús í Reykjavík sem auðkennd eru með tákni gyðinga, Davíðsstjörnunni, og sum ættarnöfn Gyðinga eru löngu orðinn hluti af íslenskum símaskrám.

Hitler átti sér aðdáendur á Íslandi eins og víðar. Hér á landi skiptust menn dálítið í tvo hópa. Þá sem urðu sannfærðir kommúnistar og svo andstæðinga þeirra. Hörðustu andstæðingar kommúnista á Íslandi kölluðu sig stoltir nasista. Þótt flestir hafi þeir reyndar reynt að gera lítið úr því eftir að nasisminn var seinna sigraður. Þó voru nokkrir sem kölluðu sig nasista fram á grafarbakkann.

Það fór svo að nasistar komust til valda með kosningasigri. Þeir höfðu þá þegar byrjað ofsóknir á hendur Gyðingum. Áður en leið á löngu lögðu þeir lýðræðið niður og Hitler var gerður að einræðisherra. Hann kallaði sig Foringjann (Führer). Börnum var kennt að dýrka Foringjann. Og Hitler, sem einu sinni var að hugsa um að verða arkítekt, byrjaði að leggja grunn að því sem hann kallaði Þúsund ára ríkið. Þýskaland nasista átti að vera komið til að vera. Nasistar vildu gamaldags samfélag með gamaldags gildum. Þeir þoldu ekki framúrstefnulega list, nýjungagirni eða óhefðbundna hluti eins og samkynhneigð.

Þýskaland hafði alltaf verið menningarlegt stórveldi og þar voru háskólar t.d. fullir af sumum fremstu vísindamönnum heims. Háskólafólkinu og listamönnunum varð fljótt ljóst að nasistar voru ekki beint að stefna á samfélag sem þeir gátu sætt sig við. Eftir að nasistar komust til valda var stöðugur straumur af mennta- og listafólki af gyðingaættum sem forðaði sér burt. Þar á meðal Albert Einstein.

Nasistum var alveg ljóst að ríki þeirra myndi ekki standa í þúsund ár nema tryggja sér aðgengi að meiri auðlindum. Eftir fyrra stríð var landið miklu minna en áður því stór svæði höfðu verið tekin af Þjóðverjum. Nú fór Hitler að gera kröfur um að fá eitthvað af þessum svæðum til baka. Sérstaklega vildi hann fá svæði sem á bjuggu þýskumælandi menn. Svo fór að Hitler tók hluta af svæðunum til baka án leyfis. Hin ríki evrópu voru allt annað en sátt en leiðtogi Breta Neville Chamberlain fór og hitti Hitler. Hann kom af þeim fundi og sagðist hafa horft í augu Hitlers sem hefði sannfært sig um að meiri yrðu vandræðin ekki. Breski forsætisráðherrann taldi sig góðan og lét hafa eftir sér: „Það mun ríkja friður á vorum dögum.“

Á sama tíma var Hitler og nasistar að úthugsa bestu leiðina til að tryggja vöxt Þúsund ára ríkisins. Þeir þurftu lebensraum, olnbogarými. Og um leið vildu minn finna „endanlega lausn á gyðinavandamálinu“.

Í þessum verkefnum er mikilvægt að glósa. Það má gera bæði í tölvu eða á blað.

Áhugavert efni sem tengist ofangreindu

Al Jolson leikur svertingja

Hitler heldur ræðu

Íslenskur nasisti í viðtali

Neville Chamberlain semur við Hitler og tryggir "frið"

...

Kafli 2: 

bottom of page